157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:55]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi góðar spurningar. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni og góður punktur að vitna til Halldórs Runólfssonar sem skrifaði ágæta grein í Bændablaðið síðasta, ef ég man rétt, þar sem hann talar um þessa rauðu línu. Við munum mörg hver, og alla vega ég og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson, þegar hestapestin kom til landsins rétt um árið 2000, nei 1998, ég fór mótavillt, biðst afsökunar. Þetta hafði veruleg áhrif á stofninn. Þessi pest sem kom þá til landsins hefur væntanlega borist með reiðverum eða reiðfatnaði, finnst mér líklegt. Við munum hvaða áhrif hún hafði á stofninn og þó var þetta væg pest. Við þekkjum líka varúðarráðstafanirnar þegar við flytjum út hesta til Evrópu, til Bandaríkjanna, hvað þarf að gera til að verja hestana vegna þess að ónæmiskerfi íslenskra húsdýra er galopið fyrir öllum þessum pestum sem þarna geisa. Þetta getur haft verulegar neikvæðar afleiðingar í för með sér. Við erum núna rétt að hrósa sigri, vonandi, á næstu árum yfir riðunni. Við fluttum hana inn sjálf fyrir 150 árum síðan og hún er búin að valda okkur búsifjum í gegnum tíðina. Það sama getur alveg gerst með aðrar búfjártegundir ef við förum ekki varlega. Við skulum hafa það bara á hreinu, virðulegur forseti, að við erum búin að prófa að flytja inn lifandi dýr til landsins og við munum öll hvaða afleiðingar það hafði á búfjárstofna hér á landi.