157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:29]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir sína ræðu. Ýmislegt áhugavert sem hann kom inn á sem ég get ímyndað mér að margir sem fylgjast með þessari umræðu og eru að kynna sér Evrópusambandið og aðdraganda þessarar þingsályktunartillögu séu einmitt að velta fyrir sér. Ég velti upp þeim spurningum og vil ekki lengja það um of því að hann nefndi aðdragandann og að þetta mál hefði ekki farið í samráðsgátt. Hann nefndi aftur á móti mikilvægi þess að utanríkismálanefnd myndi vinna vel í málinu. Ég tek heils hugar undir með honum þar og vænti ég þess að landskjörstjórn komi fyrir nefndina til að ræða spurninguna. En spurning mín í kjölfarið á ræðu hv. þingmanns varðar kannski fyrst og fremst aðlögunarferlið. Ég hef fengið margar spurningar um það núna eftir að þessi umræða spannst í kjölfarið á kynningu þingsályktunartillögunnar. Ég held að það sé uppi misskilningur hjá mörgum að það vanti bæði umræðu og upplýsingar um hvað aðlögunarferli þýðir. Hann nefndi það undir lok ræðu sinnar að það væru uppi sjónarmið hjá Evrópusambandinu sjálfu að aðildarríkin þyrftu að vera búin að ganga ansi langt áður en að eingöngu kæmi. Að því sögðu spyr ég hv. þingmann: Aðlögunarferlið sjálft, sem kemur fram frá Evrópusambandinu sjálfu, er ekki mikil ástæða fyrir okkur að lyfta upp nákvæmlega þeim punkti og ræða í þaula í utanríkismálanefnd og við síðari umræðu málsins svo allir séu vel upplýstir um hvað það þýðir?