þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að eiga hér orðastað við mig. Annað sem mig langaði að nefna í þessu tilliti er þessi umræða varðandi nýja umsókn og hvort við höfum yfirhöfuð verið umsóknarríki að Evrópusambandinu. Nú var ég þingmaður hér á síðasta þingi og sótti fyrir hönd Alþingis og þjóðar sameiginlega fundi sem við áttum, m.a. með Evrópusambandinu. Ég gat ekki betur séð, alla vega á bæði þeim fundum og þeim upplýsingum sem lágu fyrir hjá Evrópusambandinu og bara samskiptum við íslenska þingmenn, að Evrópusambandið liti ekki á okkur sem umsóknarríki, það væri algerlega skýrt, og hefði ekki litið á okkur sem umsóknarríki frá 2015.
Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann: Veit hann til þess að það sé búið að gera einhverja bragarbót á upplýsingum Evrópusambandsins, bara á heimasíðum þess, upplýsingaveitum, um að þetta hafi verið einhvers konar mistök? Við hefðum allan tímann verið umsóknarríki þrátt fyrir það bréf sem sent var á sínum tíma? Ég myndi halda að fyrir það ágæta fólk sem þarf að kynna sér málin í þaula sé grundvallaratriði að það liggi fyrir sameiginlegur skilningur okkar, ríkisstjórnarinnar, fólksins í landinu, ekki síst Evrópusambandsins, um það hvar Ísland stendur á þessum tímapunkti. Þess vegna langar mig að spyrja þingmanninn: Er hann ekki sammála mér í því að það er algerlega lágmark, fyrst við erum nú að taka þessa umræðu hér í þingsal, að það liggi fyrir að Evrópusambandið sjálft þurfi að útskýra fyrir okkur hvernig stendur á því, ef við vorum allan tímann umsóknarríki, að samskiptin sem við áttum við Evrópusambandið tóku ekki mið af því eftir 2015? Nú kemur í ljós að samkvæmt forseta Evrópusambandsins vorum við umsóknarríki allan tímann. Þetta þykir mér sæta mikilli furðu og vil fá skoðun þingmannsins á því.