þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Þetta er auðvitað alveg ótrúlegt ástand sem við horfum upp á með ríkisstjórn sem þykist ekki hafa hugmynd um hvað felist í Evrópusambandsaðild eða hvernig ferlið gangi fyrir og telji sig geta blekkt almenning til að taka næsta skref og svo næsta án þess að ræða nokkurn tímann innihaldið og raunveruleikann. Og af því að hv. þingmaður hefur nú setið alllengi á þingi, lengur en ég, þá munum við eftir fyrri tilrauninni til að leika þennan leik og það fór ekki vel. Menn rákust á raunveruleikann á endanum, eftir þrjú ár þar sem tíminn var illa nýttur af því að það mátti ekkert ganga upp á okkar forsendum. En einu hef ég velt mikið fyrir mér í þessari umræðu, eða reyndar mörgu, en eitt kom mér töluvert á óvart og það var yfirlýsing hæstv. utanríkisráðherra um að það væri forsenda að Ísland fengi að halda fullum og ótímabundnum, varanlegum yfirráðum yfir auðlindum sínum, þar með talið yfir sjávarútvegi. Ég velti mikið fyrir mér: Hvernig ætlar ráðherrann að komast út úr þessu þegar þar að kemur því ráðherrann hlýtur að vita betur? Svo sá ég hæstv. utanríkisráðherra í andsvari við hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson, við fyrri ræðu hans, þar sem hv. þingmaður benti á að það væri einfaldlega rangt sem hæstv. utanríkisráðherra sagði, að það væri búið að innleiða 80% af regluverki Evrópusambandsins, það væri svona 13–15%. Hæstv. utanríkisráðherra kom upp og sagði. Það er þín skoðun, ég ætla bara að halda því fram að það séu 80%. Er þetta hugsanlega, hæstv. forseti, leiðin sem stendur til að fara? Hæstv. utanríkisráðherra ætli bara að segja: Jú, víst, við fengum undanþágu. Við fengum undanþágu, það er mín skoðun.