þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Já, þessi fyrri tilraun er mér eins og hv. þingmanni mjög minnisstæð vegna þess að þá mátti ekkert ganga upp á okkar forsendum og það mátti alls ekki styggja Evrópusambandið eða nokkurt ríki þess af því að þetta gekk allt út á að nota tækifærið. Það er mikilvægt að hafa það í huga að það var litið á bankahrunið sem tækifæri af hálfu þáverandi vinstri stjórnar til að koma Íslandi inn í ESB með góðu eða illu. Nú sér núverandi vinstri stjórn tækifæri til að forða sér frá vandamálum hér heima, hefur greinilega gefist upp á því að ná tökum á efnahagslífinu á eigin forsendum, andstætt því sem hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir kosningar. Þau sjá tækifæri í því að drepa málum á dreif, koma með nýja umræðu. En hvers konar umræðu? Ja, sem allra minnsta umræðu um innihaldið. Það má ekki að mati hæstv. ráðherra spyrja gagnrýninna spurninga af því að þá eru menn hvað? Á móti þjóðinni. Á móti því að leyfa þjóðinni að ráða. Það má ekki einu sinni spyrja spurningarinnar eins og reynt var að gera hér fyrr í dag og hv. þingmaður nefndi: Hvað á þjóðin að ákveða? Hvað þýðir það sem þið eruð að leggja fram og bjóða þjóðinni að taka afstöðu til? Mín skoðun er sú að þau geti ekki svarað því, vilji ekki svara því vegna þess að sannleikurinn þolir ekki dagsljósið.
En ég ítreka spurningu mína eða þessa tilgátu mína um það hvernig þau ætli sér þá væntanlega að komast í gegnum þetta. Jú, með sem minnstri umræðu en einnig með því að segja bara eitthvað, fullyrða eitthvað þótt það standist enga skoðun, hvorki út frá því sem Evrópusambandið sjálft segir né reynslunni og reyna að telja fólki trú um að það séu skiptar skoðanir en þeirra skoðun sé sú að Ísland fái hérna frábæran samning. Eða dettur hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni í hug að það sé til sú niðurstaða úr viðræðum hennar við Evrópusambandið sem ráðherrann muni segja nei við?