þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Að ganga í Evrópusambandið er svolítið eins og að verða hluti af húsfélagi þar sem allir borga inn, en svo er það mjög mismunandi, og er afleiðing af áratugastjórn vinstri manna og embættismanna, hvað menn fá út úr hússjóðnum þegar þeir eru búnir að borga inn í húsfélagið. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Evrópusambandið vilji fá land eins og Ísland til að ganga í Evrópusambandið af því að við yrðum nettógreiðandi inn í sambandið, ekki nettóþiggjandi. Við myndum greiða líklega 20–40 milljarða á ári nettó sem meðlimir, sem ríkt land í Evrópusambandinu. Það er nefnilega þannig í dag, virðulegur forseti, að af 27 ríkjum eru einungis tíu ríki nettógreiðendur inn í Evrópusambandið. Það eru 17 ríki sem eru nettóþiggjendur, fá meira út úr sambandinu en þau leggja til þess. Það er áætlað að Moldóva, sem er núna umsóknarríki og yrði svona meðreiðarsveinn með okkur í aðildarumsókninni, væri að fá á milli 1 til 3 milljarða evra á ári frá Evrópusambandinu í innviðauppbyggingu. Það er svolítið sérstakt að borga í húsfélag en síðan er greitt úr hússjóðnum til að endurnýja eldhúsinnréttingu og gólfefni í sumum íbúðunum en ekki öllum. Þannig virkar Evrópusambandið og þannig mun það verða. En það er ekki bara það sem Evrópusambandið fær ef Ísland gengur inn í Evrópusambandið. Þá opnast líka hlið inn á norðurskautið og aðgangur. Að komast inn á áhrifasvæði norðurskautsins skiptir gríðarlega miklu máli fyrir Evrópusambandið.
Það sem hefur verið mjög villandi í þessari umræðu og mig langar að nota þessar síðustu tvær mínútur sem ég hef hérna til að ræða, virðulegur forseti, er að það er verið að rugla saman öryggis- og varnarmálum. Það er verið að tala hér um og búið að halda margar ræður um það að í breyttum heimi skipti svo miklu máli að við séum í einhvers konar öryggis- og varnarsamstarfi við Evrópusambandið. Við erum í öryggis- og varnarsamstarfi við alls konar þjóðir hér á Norður-Atlantshafi og við erum í NATO. Það sem mestu máli skiptir er að núna 5. maí þá eru 75 ár liðin síðan við gerðum tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin. Það er munur á okkur og Evrópusambandinu þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Og af hverju er það? Jú, af því að Ísland er inni á áhrifasvæði Bandaríkjanna, varnarsvæði Bandaríkjanna þegar kemur að vörnum þeirra sjálfra. Ólíkt Króatíu eða Austurríki er lega landsins með þeim hætti að við skiptum máli í vörnum Bandaríkjanna. En þessu er öllu sullað saman. Það að halda virkilega að einhver evrópskur her sé að fara að hafa einhvern fælingarmátt eða koma Íslendingum til bjargar — það hljóta allir að sjá hvað það er súrrealískt. Er sem sagt verið að halda því fram að það sé ekki nóg fyrir okkur að vera fullgildur meðlimur í NATO og vera með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin, öflugasta herveldi heims, eina ríkið í heiminum sem getur komið okkur til bjargar? Þetta er alveg ótrúleg umræða, talað um breyttan heim og hitt og þetta. Maður veltir fyrir sér: Hefur ekkert af þessum ágætu ræðumönnum hér lesið bara mannkynssöguna, þótt ekki væri nema bara síðustu 100 ár aftur í tímann? Hvað er búið að ganga á í heiminum? Hvað gekk á í Evrópu fyrir 80 árum síðan, akkúrat þegar við urðum sjálfstæð þjóð?
Þessi málflutningur, að reyna að hræða fólk til þess að það sé betra að ganga í Evrópusambandið á þeim forsendum að það skipti okkur máli út frá öryggis- og varnarmálum, á sama tíma og stjórnvöld sinna í engu samskiptum við Bandaríkin sem er okkar stærsti bandamaður í öryggis- og varnarmálum, er alveg ótrúlegur sem og að halda því fram að Evrópusambandið eigi að vera lausnin í þeim málum. (Forseti hringir.) Við erum komin á mjög slæman stað í umræðunni, virðulegur forseti, þegar þetta er orðinn einn stærsti útgangspunkturinn fyrir því að við eigum að segja já núna í haust.