þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við lok fyrri ræðu minnar hér í fyrri umræðu, sem var náttúrlega allt of stutt, einungis tíu mínútur, boðaði ég það að í næstu ræðu vonaðist ég til að ég kæmist í dálitla umræðu um hvað fælist í aðild að Evrópusambandinu og stöðu Evrópusambandsins en það verður að bíða síðari umræðu því að það sem hefur gerst í millitíðinni hefur eingöngu aukið á áhyggjur mínar af því sem ríkisstjórnin ætlar sér og þeim aðferðum sem hún ætlar að beita til að lauma Íslendingum inn í Evrópusambandið. Í raun verð ég bara að segja, svo ég tali hreint út, frú forseti, að mér finnst óforsvaranlegt og algerlega óviðunandi að hæstv. forsætisráðherra landsins skuli enn nálgast þetta mál með þeim hætti að láta eins og það sé bara ráðgáta hvað felist í umsóknarferlinu og neita að svara fjölmiðlum og í dag hv. þingmönnum þeirri einföldu spurningu hvort hæstv. ráðherra geri sér grein fyrir því að þegar ríki sækir um og fer í aðildarferli, aðlögunarferli er kannski réttnefnið, þá byrji það ríki strax að aðlaga sig að Evrópusambandinu. Hvað felst í því? Við þekkjum það af sögunni. Við þekkjum það af sögu síðustu 30 ára eða frá því að Evrópusambandið sem slíkt varð til, sérstaklega sögunni eftir stóru stækkunina 2004, 2005. Og við þekkjum það af því sem Evrópusambandið sjálft sendir frá sér og þurfti því miður að reyna að útskýra fyrir íslenskum stjórnvöldum, vinstri stjórninni 2009–2013. En árangurinn var ekki meiri en svo að hér er komin ný vinstri stjórn sem ætlar að leika sama leik, beita sömu blekkingum.
Það liggur fyrir, frú forseti, og þetta hefur hæstv. ráðherrum ekki tekist að sverja af sér, að um leið og umsóknarferli hefst eða heldur áfram, eins og menn kjósa að kalla það hér í sínum blekkingarleik, þá heldur aðlögunin áfram. Hún felst í lagabreytingum til samræmis við reglur Evrópusambandsins og hún felst í því að uppfylla kröfur sambandsins þá og þegar á ýmsum sviðum. Ég get nefnt sem dæmi nýjasta vandræðamálið innan Evrópusambandsins, svokallaðan hælisleitendapakka ESB sem Lettar hafa nú þegar sagt að þeir geti bara ekki hugsað sér að taka upp og segjast ekki einu sinni ætlað að greiða þær sektir sem Evrópusambandið muni leggja á þá í þeim efnum. Við eigum eftir að sjá hvernig það gengur hjá þeim. Þeir eru orðnir fangnir þarna inni en við erum það ekki. Ferlið felst líka í því að breyta stofnanakerfi landsins og stækka það, stækka báknið. Þetta útskýrði Evrópusambandið í fyrri tilrauninni, í fyrri blekkingarleiknum, að íslenska stjórnkerfið eða báknið væri ekki nærri því nógu stórt til að við gætum orðið aðilar að Evrópusambandinu.
Hér er ríkisstjórnin að bjóða Íslendingum upp á það að velja hvort þeir vilji láta kyrrt liggja og nýta áfram fullveldisrétt landsins sem hefur nýst okkur svo vel á undanförnum árum eða halda áfram að aðlaga landið að Evrópusambandinu með meira regluverki, stærra bákni, auknum völdum ókjörinna embættismanna í Brussel yfir Íslandi og allt þetta og löngu áður en nokkur svokallaður samningur verður lagður á borðið. Þetta er valið. Þess vegna reyna meira að segja hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra sem vita betur, hljóta að vita betur, að blekkja almenning, halda fyrir eyrun og segja: Nei, nei, ég er annarrar skoðunar. Og svo þegar í harðbakkann slær: Ja, þið eruð þessarar skoðunar. Við erum þessarar skoðunar. Er ekki bara best að láta þjóðina ákveða þetta? En ákveða hvað? Það er það sem má ekki koma fram.
Þess vegna þurfum við, frú forseti, að ræða þetta mál miklu meira en tækifæri gefst til hér í fyrri umræðu. Ef ríkisstjórnin ætlar að halda áfram að byggja þetta allt á blekkingunni einni (Forseti hringir.) þá munum við halda áfram jafn lengi að reyna að vera boðberar sannleikans hér í þessum þingsal.