þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ef svarið er já við hverju? Blekkingarleik ríkisstjórnarinnar? Þá ætla ég að líta til stjórnarskrárinnar sem segir mér og öllum öðrum hv. þingmönnum að þeim beri að fylgja samvisku sinni og eingöngu henni og sé bannað að lúta neinum öðrum kröfum eða ráðum og þá væntanlega allra síst einhverju leikriti og blekkingarspili. En ég ætla að freistast til að spyrja hv. þingmann spurningar á móti. Það er nú ekki til siðs í andsvörum að sá sem spurður er spyrji og þess vegna getur hv. þingmaður sleppt því að svara ef hann kýs svo: Hvers vegna var Viðreisn stofnuð? Þessi flokkur hv. þingmanns var stofnaður fyrst og fremst vegna áhuga á því að ganga í Evrópusambandið og hefur starfað þannig alla tíð síðan. Hvernig kemur það heim og saman við að sami flokkur hafi núna ekki hugmynd um það eiginlega hvað felist í því að vera í Evrópusambandinu?