157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:18]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Það var mikið fagnaðarefni fyrir mig þegar Viðreisn var stofnuð enda fann ég ekki mitt pólitíska heimili sem frjálslyndur maður hægra megin við miðju sem er jafnframt Evrópusinni. Ég kannast ekki við það að Viðreisn viti ekki hvað felst í Evrópusambandsaðild. Ég veit t.d. það að með Evrópusambandsaðild og upptöku evru þá þyrftum við ekki að eyða milljörðum á milljarða ofan í að viðhalda gjaldeyrisvaraforða. Við þyrftum ekki að hafa jafn háa stýrivexti til að halda niðri verðbólgu. Við gætum m.a. litið til fordæma hjá Króötum, hvernig lánin þróuðust þar og fjármagnskostnaður eftir að þeir tóku upp evruna. Það er allt eitthvað sem fylgir með Evrópusambandsaðild og þetta er eitthvað sem ég er tilbúinn til að ræða. Þessi þingsályktunartillaga snýst um það að fela þjóðinni að taka ákvörðun um hvort við höldum áfram eða ekki. Ég skildi svar hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þannig að hann myndi ekki virða þjóðarviljann ef niðurstaðan úr þessu verður já.