þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Þetta er einmitt umræða sem við þurfum að taka en ríkisstjórnin treystir sér ekki í, ekki frekar en umræðuna um eigin árangur eða réttara sagt árangursleysi við stjórn efnahagsmála á Íslandi. Við munum væntanlega flest, alla vega þátttakendur í stjórnmálum, eftir digrum yfirlýsingum, sérstaklega frambjóðenda Samfylkingarinnar en raunar líka Viðreisnar, um að hér yrði aldeilis tekið á málunum og það yrði gert hratt. Verðbólga og vextir barðir niður, húsnæðismarkaðurinn lagaður o.s.frv. Nú hafa menn gefist upp á þessu verkefni og tekið aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið með að það sé líklega bara betra að fela einhverjum öðrum, einhverjum kjörnum fulltrúum í Brussel, Ursulu von der Leyen og félögum, að sjá um þetta fyrir okkur af því að við ráðum ekki við það, segir hæstv. ríkisstjórn. Það er rétt að hún ræður ekki við það (Forseti hringir.) en Íslendingar, með skynsöm og öflug stjórnvöld, ráða sannarlega við að stjórna sér sjálfir.