157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:27]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi ræðu. Þjóðarviljinn um hvað? Hv. þingmaður varpaði þessari spurningu fram. Þjóðarviljinn um hvað? Þetta er mjög góð spurning. Já eða nei, segir þingsályktunartillagan. Ég ætla hér í mínu fyrra andsvari að halda mig við þingsályktunartillöguna og hvernig hún lítur út. Það vantar eiginlega allt í hana að mínu mati. Sá blekkingarleikur sem hér er viðhafður er augljós vegna þess að það er ekkert í tillögunni. Það er ekki einu sinni kostnaðarmat í tillögunni. Það er, held ég, lágmark fyrir þjóðina til þess að þjóðarviljinn komi fram, að þjóðin viti hvað er verið að greiða atkvæði um. Getur hv. þingmaður verið mér sammála um það?