þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Algjört lykilatriði en akkúrat atriði sem má ekki nefna í þessum leik ríkisstjórnarinnar þar sem mátti ekki einu sinni setja málið í svokallaða samráðsgátt sem er til þess ætluð að hafa samráð við almenning, þennan sama almenning, þessa sömu þjóð og ríkisstjórnin þykist vilja leyfa ráða för. Það var ekki tími til þess, það þurfti að keyra þetta í gegn með sem allra minnstri umræðu. Svo mikið lá á að það gleymdist meira að segja að gera kostnaðaráætlun eins og lög gera ráð fyrir að skuli gert, því var bara sleppt. Allt eru þetta vísbendingar um að það eigi að fara í þetta á fölskum forsendum. Ein sterkasta vísbendingin í viðbót er það sem hv. þingmaður kom aðeins inn á, að menn treysta sér ekki einu sinni til að segja frá því fyrir fram hverjar kröfurnar verði. Menn treysta sér ekki til að segja (Forseti hringir.) að ef þetta gerist þá munum við ekki ganga lengra í þessu ferli.