þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hvernig á að umgangast þessa umræðu þegar þingsályktunartillaga lítur út með þeim hætti sem hér er til umfjöllunar? Það er mjög vandasamt og sérstaklega í svona stóru máli. Þetta er látið liggja þannig og líta þannig út að þetta skipti ekki alveg öllu máli. En þeir sem leggja tillöguna fram reikna með að svarið verði já. Þá er ríkisstjórnin, utanríkisráðherra, með frjálsar hendur og getur þá farið bara sinn veg eins og hæstv. utanríkisráðherra vill, vera úti í Brussel og ræða þar málin. Um hvað á að ræða? Hver eru skilaboð þjóðarinnar? Þau verða engin vegna þess að þjóðin veit ekki um hvað er verið að kjósa. (Forseti hringir.) Nema bara þetta: Kíkjum í pakkann og segjum já.