157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður orðaði þetta svo vel að ég hef eiginlega litlu við að bæta öðru en því að það er mikilvægt að fólk átti sig á þessu. Þetta gengur út á það af hálfu ríkisstjórnarinnar að fá bara já og geta svo farið með það að vild. Já við hverju? Það má ræða það. Fá bara já, fá með öðrum orðum óútfylltan tékka á fullveldi Íslands og setja hann í hendurnar á hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Enginn í útlöndum lætur sér detta í hug að þetta snúist bara um að fá já við því hvort það eigi að kíkja í pakkann áfram. Þær vefsíður sem sögðu okkur fyrst frá því hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera og hvenær fagna því nú að skoðanakönnun hafi sýnt að 52% á móti 48% séu til í að ganga í Evrópusambandið. Það var fullyrt að það hafi verið spurningin: Ertu til í að ganga í Evrópusambandið? Það var ekki spurningin. Að hætti ríkisstjórnarinnar var spurt: (Forseti hringir.) Viltu ræða málin áfram? Það hvarflar ekki að neinum, annars staðar en á Íslandi, að halda slíku fram.