þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Því miður get ég ekki bent hv. þingmanni á slíkt dæmi því það er ekki til. Það er ekki til, hefur aldrei gerst. Norðmenn, með Gro Harlem Brundtland sem forsætisráðherra, sóttu að vísu um, ríkisstjórnin á þeim tíma var einhuga um að komast í Evrópusambandið og taldi sig hafa þjóðina á bak við sig en hafði einfaldlega misreiknað sig. En þeir létu sér aldrei detta það til hugar að halda því fram að það væri bara verið að kanna hvað væri í boði. Við höfum ekki hugmynd um það, við vitum ekkert hvað er í þessu Evrópusambandi en við verðum að vita meira, við verðum að fræðast og þess vegna ætlum við að sækja um. Þetta er náttúrlega hálfniðurlægjandi, frú forseti, fyrir Íslendinga að sitja uppi með stjórnvöld sem fara fram með slíkan málflutning. Það er bara eins og það sé einhver sirkus í gangi hérna við Austurvöll og það sárnar mér fyrir hönd Alþingis og þjóðarinnar.