157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:36]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er reyndar alveg hárrétt hjá hv. þingmanni. Það skilur þetta enginn utan stjórnarliðsins og það er ekki að ástæðulausu. Það er vegna þess að annars staðar kjósa menn að lifa í raunheimum og stjórnvöld í öðrum löndum hafa einhverja hugmynd um það hvað Evrópusambandið er, hvað felst í því að vera aðili að því og hvernig umsóknarferlið fer fram. En hér erum við með stjórnvöld sem treysta þjóðinni, Íslendingum, svo illa að þau reyna að draga upp einhverja allt aðra mynd, búa til einhvern sýndarveruleika og fá málið samþykkt á þeim forsendum. Vara svo hv. þingmenn við því að tala of lengi um þetta mál, það sé ekki gott að menn séu að eyða of miklum tíma í að tala um fullveldi landsins og hvernig Evrópusambandið sé í raun og veru. Hvers vegna? Vegna þess að þetta mun ekki skila þeim neinum árangri ef fólk kemst að sannleikanum.