þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Auðvitað þarf að skýra allt þetta miklu betur. Staðreyndin er sú að ef þróun mála yrði með þeim hætti að ekkert gerðist þarna á milli, frá atkvæðagreiðslunni í ágúst þar til samningur, aðlögunarsamningur, uppgjafarsamningur, hvað við viljum kalla þetta, verður lagður fyrir þjóðina þegar þar að kemur, þá væri þetta kannski eitthvað sem væri hægt að hafa minni áhyggjur af. En staðreyndin er sú að aðlögunin hefst og fer á fulla ferð um leið og niðurstaðan verður já við þessari óskýru spurningu, þessari leiðandi og raunar villandi spurningu sem er lögð fyrir í þessari þingsályktunartillögu. Ég held að allt þetta þurfi að leiða fram með miklu betri og skýrari hætti en reynt hefur verið hingað til hvað þetta mál varðar.
Varðandi gjaldmiðilinn og vextina og það sem hv. þingmaður vísar til varðandi flökt á gjaldmiðlinum þá er þetta auðvitað bara einhver mýta sem aðildarsinnar hafa haldið fram lengi en hefur árum saman blasað við að er röng eins og margt annað í málflutningnum, því miður. Það er auðvitað þannig eins og hv. þingmaður kom inn á varðandi þessa 3 milljarða í viðhald vega, sem mikil húrrasamkoma var haldin vegna sem og blaðamannafundir, að þetta er smælki í samhengi við kostnaðinn sem hlýst af þeirri vegferð sem nú er lögð til, bæði þess beina og óbeina. Allt þetta þurfum við að ná að skýra og ef ríkisstjórnin treystir sér ekki til þess — það er ekkert sem bendir til þess, ekki eru þingmenn stjórnarflokkanna að hlaða sig hér á mælendaskrá og mæta varla í andsvör. En hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir situr vissulega hér í sal og hlustar á þessar frábæru ræður sem við flytjum hérna. En ég verð að láta þetta duga, hv. þingmaður, (Forseti hringir.) en mér er til efs að það sé meiri upplýsingaóreiða í mörgu sem við höfum tekið okkur fyrir hendur að ræða hér í þinginu á síðustu árum.