þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi ræðu. Hv. þingmaður kom hér í andsvar við hv. þingmann Jens Garðar Helgason og minntist kvikmyndarinnar Nýs lífs þar sem Þór og Danni voru í aðalhlutverkum og síðan man ég eftir annarri mynd sem hét Dalalíf þar sem maður nokkur sem hét J P eða eitthvað svoleiðis og sem ágætur Sigurður Sigurjónsson lék, kallaði „I love it“ og við munum vel eftir því. Mér finnst í því samhengi, virðulegur forseti, að um þá þingsályktunartillögu sem hér er rædd segi stjórnarliðar bara „I love it“ — með leyfi forseta, ég biðst afsökunar á að sletta á ensku — þegar þetta svokallaða þunnildi er borið á borð fyrir okkur. Menn bara segja: Já, þetta er lítið mál. Það er mjög einfalt fyrir þjóðina að taka upplýsta ákvörðun, bara að kíkja í pakkann og ekkert mál.
Ég vil spyrja hv. þingmann bæði hvað varðar kostnaðarmat og skilgreiningu á því hvert á að fara. Allir þessir þættir liggja ekki ljósir fyrir samkvæmt þessari þingsályktunartillögu. Hvernig í ósköpunum á þjóðin að geta tekið upplýsta ákvörðun um það hvort hún segi já eða nei, vegna þess að hvoru tveggja, já eða nei, er lýðræðislegt val hvers og eins, en þessari spurningu verður mjög illa hægt að svara þegar staðreyndir liggja ekki á borðinu og upplýsingar til almennings eru af verulega skornum skammti?