157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:08]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fína ræðu um það sem snýr að varnar- og öryggismálum og hvernig málið er sett fram í kafla 3 í þingsályktunartillögunni. Það mætti kannski dýpka einmitt umræðuna sem snýr að þessu, mér finnst þessi umræða ekki hafa verið allt of mikil. Það er einhvern veginn búið að setja málið í þann búning að þetta sé farið að snúast um varnar- og öryggismál okkar Íslendinga. Ég vildi því fá frá hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur hvernig hún nálgast það sem snýr að þessu og er skrifað inn í þingsályktunartillöguna. Nú eru örfáar vikur í að það verði 75 ár liðin, núna 5. maí, frá því að skrifað var undir tvíhliða varnarsamning við Bandaríkjamenn og 4. apríl verða 76 ár síðan við undirrituðum stofnsáttmála NATO. Nú virðist þetta allt saman vera svolítið tengt og eiga að snúast um að Evrópusambandið eigi einhvern veginn að fara að tryggja varnir og öryggi okkar Íslendinga. Það hefur verið bent á 7. mgr. 42. gr. Lissabon-sáttmálans, grein sem sá sem hér stendur segir að sé í raun ekkert um varnar- og öryggismál, hún snýst um allt annað, a.m.k. sögðu bæði Finnar og Svíar árið 2022: Þótt við séum í Evrópusambandinu myndi sú grein í Lissabon-sáttmálanum, 7. mgr. 42. gr., ekki tryggja okkur. Er þetta ekki bara eitthvað svona húmbúkk, þessi nálgun sem snýr að varnar- og öryggismálunum, að leggja þessa mikla áherslu á þetta eins og kemur þarna, einhvern veginn gefið í skyn að þetta snúist um varnar- og öryggismál?