þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er nefnilega þetta sem ég a.m.k. vil tala um varðandi það sem við erum að ræða og snýr að þessu, mikilvægi þess að fræða en ekki hræða. Það á ekki að hræða okkur inn í hlutina. Það á að fræða Íslendinga um varnar- og öryggismálin og hver raunveruleikinn er á bak við. Það mun taka Evrópusambandið 10–20 ár að lágmarki að ná einhverjum þeim stað að þessi ríki geti mögulega komið eitthvað inn í varnarmál á svæðinu í Norður-Atlantshafi en það er langt í það. Þess vegna eru varnir af hálfu Bandaríkjanna möguleiki sem er uppi í dag. Mér fannst það ánægjulegt, ég sagði það fyrr í ræðu í dag að mér fannst gott að forsætisráðherra Kanada fór til Ósló um helgina og hitti norræna forsætisráðherra, mér fannst það gott og vonandi kemur Kanada meira inn sem öflugt NATO-ríki. Að fræða en ekki hræða hlýtur að vera málið. Þá verður að hafa í huga að í NATO eru Evrópusambandsríkin með um 20% af fjárveitingum til varnar- og öryggismála, 20%. 23 ríki af 27 ríkjum sem eru í Evrópusambandinu eru með 20% af fjárveitingum til NATO. Hin níu ríkin í Atlantshafsbandalaginu, sem eru utan Evrópusambandsins, eru með um 80% af fjármagninu. Frá Bandaríkjamönnum eru það 55–60%, Bretar eru með 10%, Tyrkir eru væntanlega með töluvert líka, síðan erum við með Norðmenn, Kanada, Ísland og þau ríki sem eru þar fyrir utan. En þetta er bara staðan sem við þurfum raunverulega að taka tillit til í þessu samhengi. Þess vegna er sá málflutningur sem er búinn að vera undanfarna mánuði um þetta, í aðdragandanum að þessari umræðu — mér finnst hann ekki hafa verið vel (Forseti hringir.) undirbyggður miðað við stöðu mála í stóru myndinni.