þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið og fyrir að eiga hér orðastað við mig. Veruleikinn er auðvitað sá að 450 milljónir manna eru innan Evrópusambandsins, ef ég man rétt, og ég hef auðvitað efast lengi um hversu mikið við vigtum þar inni. Án þess að fara nánar út í það verð ég að nefna að Evrópusambandið heldur úti alveg gríðarlegu magni af upplýsingum um starf sambandsins, um alla anga þess, heilu fréttaveiturnar, þannig að það er ekki eins og Evrópusambandið ætti að vera eitthvert óráðið verkefni. Og fyrst við erum að fara í þessa vegferð á annað borð þá held ég að það hljóti að vera, ef maður setur sig í spor fólksins í landinu, að við þurfum að fá svör um það hvort Ísland geti yfirhöfuð fengið undanþágur frá grundvallarreglum Evrópusambandsins. Ég bara gef mér að það hljóti að hafa einhver áhrif á það hvernig fólk kemur til með að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Ég held að það sé algjört grundvallaratriði. Auðvitað hefur Evrópusambandið tekið breytingum og það hefur íslenskt samfélag svo sannarlega gert og hvað þá frá því að við sóttum um á sínum tíma. Nú segja þeir sem vilja fara inn í Evrópusambandið að við stöndum svo vel að vígi vegna þess að okkar samningsstaða sé svo sterk. Það kann vel að vera. Aðrir segja að okkur hafi raunverulega gengið miklu betur en Evrópusambandsþjóðunum ef við horfum bara til síðustu tíu ára. Ég er einn af þeim sem sjá það bara svart á hvítu. Þar af leiðandi hef ég minni áhuga á Evrópusambandsvegferð. Grundvallaratriðið er þetta: Af einhverjum ástæðum, virðulegi forseti, virðast einhverjir telja að við þurfum ekki allar upplýsingar á meðan það liggur í hlutarins eðli — og ég spyr þingmanninn hvort hún (Forseti hringir.) taki ekki undir með mér hvað það varðar — að því meiri upplýsingar sem við fáum frá Evrópusambandinu sjálfu, því betra fyrir þá sem eru að fara að taka ákvörðun.