þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Jú, ég er algerlega sammála því að það þurfi að liggja miklu betur fyrir hvað við erum að fara að greiða atkvæði um. Ég get alveg sýnt því skilning að einhver vilji ganga inn í Evrópusambandið. Ég er ekki þar, en það kann að vera til fólk sem finnst að auðlindir okkar skipti ekki miklu máli. Því finnst að við þurfum ekkert að verja þær eins og aðrir telja að þurfi að verja þær. Ég held að flestir hv. þingmenn t.d. Samfylkingarinnar og Viðreisnar séu þar af því að það er á stefnuskránni að ganga inn í Evrópusambandið. Þess vegna er mér algerlega óskiljanlegt af hverju þeir vilja ekki taka umræðu um hvað Evrópusambandið er.
Nú ítreka ég aftur að enginn þingmaður frá meiri hlutanum er í þingsal. Ég sé tvo hérna í hliðarsal og þeir eru að segja eitthvað en ég heyri ekki hvað þeir eru að segja, en vonandi koma þeir í ræðu og þá heyri ég betur hvað þeir eru að segja og þeir geta kannski sagt okkur af hverju við eigum að kjósa, hjálpað okkur og þjóðinni að komast að því hvort við segjum já eða nei í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Mér finnst enginn bragur á því að þurfa að plata fólk, er ekki bara hægt að tala um hlutina eins og þeir eru? Ég vil endilega gera það. En það var í fréttum frá Evrópusambandinu sjálfu að það eru engar varanlegar undanþágur, 95% er óumsemjanlegt og 5% er sennilega bara mest aðlögunartíminn. Af hverju er ekki hægt að vera heiðarlegur með hvernig Evrópusambandið er og sýna því skilning að sumir vilji fara þarna inn og aðrir ekki?