157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:47]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fyrir hennar erindi. Svo það sé sagt, frú forseti, þá var það svolítið í anda þess sem ég hafði átt von á, þ.e. það er og var alltaf flókið að átta sig á því hvað hv. þingmaður stóð fyrir og stendur fyrir í þessu máli er varðar aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mér fannst þessi ræða sem hv. þingmaður flutti hér og nú einmitt vera enn eitt innleggið í það af hennar hálfu. Það er reynt að tala jafnt við báða hópa. Það er reynt einhvern veginn að styggja engan, vera jafn vel stödd, alveg sama hver niðurstaðan verður, og færa það svo í einhvern fallegan búning um að þetta þurfi svo vandaða málsmeðferð — sem ég held reyndar að allur þingheimur taki undir með hv. þingmanni og hafi gert frá því að umræðan hófst í síðustu viku. Ég held að enginn hafi óskað eftir því að þetta yrði óvönduð umræða né heldur held ég að nokkur hafi dregið í efa að hver og einn þingmaður, og eftir föngum íbúi þessa lands, þurfi að eiga svarið við eigin samvisku. Ég held að það þurfi ekki að eyða löngum ræðum í að fara yfir það. Það var ýmislegt tínt til í yfirferð hv. þingmanns sem ýmist rökstuddi þarfaleysi á því að hefja þessa vegferð, samanber það sem við höfum treyst á hingað til, Atlantshafsbandalagið, EES-samninginn, NATO, varnarsamninginn við Bandaríkin o.s.frv. Síðan var bara svissað yfir í miðri ræðu og farið í að rökstyðja að það þyrfti samt einhvern veginn að láta þessa vegferð alla saman hafa sinn gang. Ég bara átta mig ekki á hv. þingmanni, hvort sem ég hlusta á hana hér í ræðustóli, í sjónvarpsþáttum eða les greinar í blöðum eða frétt á RÚV, hvert viðhorf hv. þingmannsins sjálfs er.

Segjum sem svo, hv. þingmaður (Forseti hringir.) að niðurstaðan verði sú að það verði til að mynda mjög tæpt, (Forseti hringir.) að þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði slök, fylkingarnar verði mjög tæpar, (Forseti hringir.) eins og fram hefur komið, 48:52. Afsakið, frú forseti. Hver er skoðun hv. þingmanns sjálfs? (Forseti hringir.) Er hún hlynnt eða andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið?

(Forseti (EÁs): Forseti vill minna hv. þingmann á ræðutímann. Einnig vill forseti minna hv. þingmann á að ávarpa skal þingmann með því að kenna hann við kjördæmi hans eða nefna hann fullu nafni.)