þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir þetta. Núna er það þannig að ég tel að útkoman úr þessum samningaviðræðum, ef málið fer þangað, verði þess eðlis að það sé óhætt að segja já við þessum samningi. Það eru þær væntingar sem ég hef til málsins fyrir fram. Ég átta mig á því að hv. þm. Ólafur Adolfsson er ekki sömu skoðunar og lítur sjálfsagt á það fyrir fram að hann verði í þeirri stöðu að segja nei ef málið nær svo langt. Minn flokkur hefur hins vegar alltaf sagt, og við skulum ekkert vera að láta það hljóma einhvern veginn eins og það séu einhver tíðindi, að ef aðildarsamningur eftir þetta ferli, sem mögulega fer af stað, er þess eðlis að þetta er bara vondur díll fyrir Ísland þá verður Viðreisn fyrsti flokkurinn til þess að segja nei. Við höfum alltaf lýst því þannig að Evrópusambandið sé ekki markmið í sjálfu sér heldur leið að markmiði, leið að meiri stöðugleika, leið að meiri samvinnu þjóða, leið að því að efla hér mannréttindi og vera í félagi við líkt þenkjandi þjóðir, rétt eins og hefur verið að gerast í allri álfunni. Ég er a.m.k. tilbúinn til þess að lýsa því yfir að ef samningurinn verður ekki góður þá greiðir maður auðvitað ekki atkvæði með því. Þetta sem er verið að tala um hér með auðlindirnar, það eru held ég allir sammála um að það hljóti að vera samningsmarkmið að halda yfirráðum yfir þeim.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hann kemur úr flokki sem hefur talað svolítið mikið gegn aðild: Eru menn algjörlega 100% öruggir á því að þessar samningaviðræður geti ekki leitt til einhvers sem verður til framfara fyrir íslenska þjóð, að íslensk þjóð verði betur sett eftir heldur en fyrir? Eru menn algjörlega búnir að útiloka þann möguleika að þetta ferli geti skilað því að íslenskt samfélag verði betra með því að fara inn í Evrópusambandið heldur en að standa fyrir utan?