þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Þetta er stórt og mikilvægt mál sem við ræðum hér og búin að vera ágæt umræða um þetta stóra og mikla mál. Hæstv. forsætisráðherra hefur ekki tjáð sig mikið efnislega um þingsályktunartillöguna nema í óundirbúnum fyrirspurnum hér í þinginu fram að þessu. En ég hjó eftir einu, orðum sem fallið hafa í þingsal frekar en í fjölmiðlum, þar sem er haft eftir forsætisráðherranum, með leyfi forseta, að Ísland standi efnahagslega sterkt núna og hafi sterka sjálfsmynd. Af hverju stöndum við Íslendingar efnahagslega sterkt í dag? Það er nákvæmlega vegna þess að við höfum spilað gríðarlega vel úr okkar málum um langt tímaskeið. Hagvöxtur frá aldamótum hefur verið hér um 40% á meðan hann hefur verið um 16–17% í Evrópusambandinu. Á síðustu 10–12 árum hefur jafnvægi á gengi krónunnar verið með allt öðrum hætti heldur en við höfum séð áður. Þar hefur náðst ákveðinn árangur. Atvinnulífið hefur byggst upp. Nýsköpunin, ferðaþjónusta og fleiri atvinnugreinar hafa komið sterkt inn þannig að við sjáum gengiskrossana, íslensku krónuna annars vegar gegn dollara eða evru, vera með allt öðrum hætti en þessar gríðarlegu sveiflur sem voru hér áður fyrr. Íslenska krónan stendur með íslensku efnahagslífi, upp og niður. Og kannski hefur stærsta einstaka atriðið þar verið það að Íslendingar þola illa atvinnuleysi. Með því að taka upp evruna erum við að gefa frjálsari hendur með að hér sé gjaldmiðill sem er ekki í sambandi við íslenskt efnahagslíf og fylgir ekki þeim sveiflum sem þar eru og það verður til atvinnuleysi, sem er reyndar með meira móti núna en oft áður akkúrat á þessum tímapunkti. En við höfum haft krónuna, hún hefur komið — þannig að í sögulegu samhengi þá hefur ekki verið mikið atvinnuleysi á Íslandi og það hefur verið mikil gjöf fyrir okkur Íslendinga.
Ég vil síðan rétt koma inn á, í þessari seinni ræðu, það sem snýr að tímasetningunni á atkvæðagreiðslunni. Sá sem hér stendur er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslum. Það er hins vegar gríðarlega mikilvægt að það sé vel spurt og efnislega rétt. Sá sem hér stendur hefur lagt fram tillögu um þjóðaratkvæði um Reykjavíkurflugvöll átta sinnum. Ég sé að það eru meiri möguleikar núna t.d. í því máli að það fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um einn helsta þjóðaröryggisinnvið okkar, grundvallarinnvið í þessu landi út frá mjög mörgum hlutum. Það verður þá áhugavert að heyra hvernig sú umræða mun fara fram hér í þingsal sem snýr að því.
Það er heldur ekki uppörvandi að hlusta á kanslara Þýskalands, Friedrich Merz, og Macron, forseta Frakklands, tala um samkeppnishæfni Evrópu, stöðu mála innan Evrópusambandsins. En á þeim tímapunkti eru hugmyndir stjórnarmeirihlutans hér á þingi, ríkisstjórnarinnar, að fara í viðræður við Evrópusambandið, þegar stærstu ríkin innan Evrópusambandsins, forsvarsmenn þeirra, leiðtogar, eru að gagnrýna Evrópusambandið fyrir stöðuna og hvernig komið er fyrir samkeppnishæfni Evrópu. Hún er ekki góð. Hún hefur þróast illa. Hér um aldamótin var farið í mikið átak til að tryggja — þá talaði Evrópusambandið um að hér ætti að einbeita sér að samkeppnishæfni Evrópu. Þessi markmið frá því fyrir um aldarfjórðungi síðan hafa engan veginn gengið eftir. Þetta umhverfi hefur bara ekki gengið upp. Ég vona svo sannarlega, og það er mikilvægt fyrir Ísland, að Evrópusambandið sé sterkt og þau lönd sem eru hluti af Evrópusambandinu, að Evrópa sé sterk. En sá sem hér stendur telur þetta ekki rétta tímapunktinn og hefur ekki endilega trú á því að þetta muni ganga upp til lengri tíma hjá Evrópu. Við Íslendingar eigum miklu meiri tækifæri á eigin forsendum með íslenskar auðlindir til að spila áfram, að byggja upp á Íslandi bestu lífskjör sem nokkur þjóð býr við.
Ég sé að tími minn er liðinn, herra forseti.
(Forseti (BergÓ): Það er rétt lesið.)