157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:23]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ræðuna. Ég gat ekki stillt mig um að fara í smá orðaskipti við þingmanninn þegar ég heyrði þennan mikla lofsöng um íslensku krónuna. Ég velti því fyrir mér hvort við séum að tala um alveg sama gjaldmiðilinn. Við erum væntanlega að tala um íslensku krónuna sem gerir það að verkum að það eru gjaldeyrishöft á lífeyrissjóðunum sem svo aftur gerir það að verkum að það verða stundum miklar eignabólur hér og lífeyrissjóðirnir eru orðnir yfirgengilega stór leikandi á íslensku sviði því að þeir komast varla út með fjármagn. Við erum þá væntanlega líka að tala um íslensku krónuna sem þarf að verja með óheyrilega stórum og dýrum gjaldeyrisvaraforða, inngripum hvers kyns, og um krónu sem í raun og veru nýtur ekki neins trúverðugleika á alþjóðavettvangi. Ég held að það hljóti að vera nokkurn veginn óumdeilt að krónan er ekki gjaldmiðill sem menn horfa til í alþjóðlegu samhengi. Það er stundum verið að tala um okkur Noreg og Sviss á sama tíma þegar rætt er um Evrópusambandið og bent á að hin tvö ríkin standi þar fyrir utan líka. Sviss er auðvitað með svissneska frankann sem er alþjóðlegur gjaldmiðill sem nýtur trúverðugleika og það má segja að norska krónan sé völduð af stærsta fjárfestingarsjóði í heimi. Því hefur margoft verið lýst af völdum aðilum í atvinnulífinu að krónan sé í sjálfu sér samkeppnishindrun. Tökum t.d. banka og tryggingafélög: Af hverju ættu bankar og tryggingafélög að koma í auknum mæli inn á íslenskan markað þegar þau þyrftu að keppa við fyrirtæki sem þekkja markaðinn betur en þau fyrirtæki og eru í ofanálag með mögulegar gengissveiflur undir? Ég beini því þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort það geti ekki verið að hann sé að ofmeta kosti íslensku krónunnar.