157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:28]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég var auðvitað ekki að tala niður lífeyrissjóðina, engan veginn. Ég var einfaldlega að benda á að íslenska krónan gerir það að verkum að þeir eru kannski fastari hér með fjármagn sem skekkir markaði innan lands vegna þess að það eru gjaldeyrishöft á sjóðunum til að verja krónuna sem þarf mikla gjörgæslu af og til. Við getum tekið dæmi. Við erum alltaf að nefna í þessari umræðu að við séum lítil eyja í ólgusjó stórvelda og að það gerast alls konar hlutir sem við höfum ekki fulla stjórn á. Við höfum lent í þeirri stöðu að krónan hefur bætt alveg verulega við vanda heimila og fyrirtækja og það gerðist til að mynda í hruninu, svo við tökum kannski ýktasta dæmið um það. Svo koma menn þegar krónan leiðréttir sig og tala um að þá sé krónan í sjálfu sér að bjarga því sem krónan var þó völd að. Mér finnst þetta allt svolítið bíta í skottið á sjálfu sér. Svo er það auðvitað líka þannig að efnahagsástandið er ekki einsleitt í Evrópusambandinu, ekkert frekar en efnahagsástandið er einsleitt í Bandaríkjunum. Við getum líka borið gjaldmiðlamálin okkar saman við þau sem Færeyingar búa við. Það er líka lítil eyja. Þeir eru tengdir evrunni eins og við vitum. Það hefur gagnast þeim mikið. Við höfum t.d. séð hvernig forvígismenn króatíska seðlabankans hafa verið að tala um að það að fara í stærra myntsamstarf hafi haft góð áhrif á það ágæta land. Reyndar er það þannig að ég held að við finnum ekki eitt einasta dæmi um það í seinni tíma hagsögu að ríki hafi sérstaklega verið að leita eftir því að komast inn á minna myntsvæði. Það held ég að sé ekki. Þetta er svolítið séríslensk sérviska og mér finnst það satt best að segja vera svolítil blinda að halda í þann þráð að íslenska krónan (Forseti hringir.) sé einhver sérstakur bjargvættur fyrir íslensk heimili og fyrirtæki, því að það er hún svo sannarlega ekki og hefur ekki verið. Hún hefur oft verið notuð til að færa fjármagn á milli hópa án þess að um það hafi sérstaklega verið spurt.