þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Þetta voru margir punktar og margar spurningar til að taka fyrir í stuttu svari. Ef við höldum hins vegar aðeins áfram með lífeyrissjóðina; 8.500 milljarðar. Nú eru eignir Íslendinga erlendis um 43%, minnir mig, af landsframleiðslu. Þetta er gjörbreyting, breyting sem hefur orðið á síðustu tíu árum. Þetta hefur búið til meiri stöðugleika fyrir krónuna, styrkt krónuna gagnvart öllu flökti, m.a. með því að hækka hlutföllin sem lífeyrissjóðirnir mega fjárfesta fyrir erlendis. Þetta er gríðarleg eignasöfnun sem hefur orðið erlendis, sem er hluti af dæminu um það sem hefur verið jákvæð þróun. Þess vegna hefur umhverfið verið að breytast á margan hátt, sérstaklega frá 2013, 2014, frá síðasta áratug.
Launaþróun á Íslandi, samningar og slíkt. Nú er sá sem hér stendur með skýrslubeiðni, sem ég fékk svar við í dag, ég frétti af því í dag, um launaþróun ríkisins, opinbera kerfisins. Nú fæ ég svarið en ég þarf þá a.m.k. að bíða út apríl og ég hef verið að leita eftir því hvort þetta sé ekki að koma. Þá verða tíu mánuðir liðnir. Þetta er lykilatriði varðandi íslenskt efnahagslíf, þetta er beiðni um síðustu tíu ár, til að átta sig á launaþróun ríkisins og ríkisstarfsmanna í þessu samhengi. Agi og formfesta varðandi kjarasamninga er í rauninni líka forsenda fyrir þessum stöðugleika. Þarna verður kannski einn helst varðandi verðbólguþróun og annað, sem kemur annars vegar frá launaþróuninni. Það er búið að byggja upp gríðarlega mikinn kaupmátt, af því að við erum að tala um eltingaleik við verðbólgu, ef við værum aðeins stöðugri. Þetta er bara til að vinna með íslensku efnahagslífi; eignir erlendis, agi og formfesta. Þetta er nefnilega ekki alveg svona einfalt. Svo er mikið í umræðunni hvernig þetta verið síðustu áratugi. Af hverju miðum við ekki við þann veruleika sem er búið að skapa hér í efnahagslífinu á síðustu 10–12 árum (Forseti hringir.) með þessum hlutum, hvernig þeir hafa tekið gjörbreytingu? Hv. þm. Sigmar Guðmundsson kemur inn á að íslenska krónan sé ekki bjargvættur. En evran fyrir íslenskt efnahagslíf, íslenska þjóð, (Forseti hringir.) er heldur enginn bjargvættur til lengri tíma þegar við erum að byggja upp kaupmátt og hagsæld í þessu landi.