þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Þessu er auðsvarað: Við treystum þjóðinni. En getur hv. þingmaður ekki verið mér sammála í því, sem var nú megininntak minnar ræðu, að til þess að geta tekið ákvörðun þegar menn ganga til kosninga þá þurfi ákveðnar upplýsingar að liggja fyrir? Ég taldi í löngu máli upp í þessari ræðu og líka í ræðu minni fyrr í dag hvaða upplýsingar ég teldi að ættu að liggja fyrir þegar þjóðin færi að kjósa um þetta mál. Ég taldi það upp í mörgum liðum hvað ég teldi að ætti að liggja fyrir. Þessu hefur ríkisstjórnin vanrækt að segja þjóðinni frá. Við erum búnir að ræða þetta mál núna hérna í þrjá daga, held ég, þrjá þingdaga, og þessar upplýsingar hafa ekki komið. Hæstv. ráðherrar, sumir hverjir, hafa brugðist við með einhverjum reiðilestri þegar þeir eru spurðir um þetta; um sjávarútvegsauðlindina, landbúnaðinn, orkuauðlindirnar o.s.frv. og hver samningsmarkmiðin séu, eðlilega, í þessum málum. Miðflokkurinn hræðist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu, alls ekki, en við viljum gæta þess að ríkisstjórnin komi með allar upplýsingarnar á borðið til að þjóðin geti tekið upplýsta afstöðu. Þetta sé ekki bara í einhverjum frösum eins og: Við treystum þjóðinni. Þið þurfið þá að upplýsa þjóðina áður.