157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:03]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Viðræðum var sannarlega hætt og það af hálfu vinstri stjórnarinnar sem til þeirra stofnaði og svo var þeim slitið. Ísland var ekki lengur umsóknarríki og öllum gert það ljóst og Evrópusambandinu sjálfu sem bókaði það í sína fundargerð. En samt mætir ríkisstjórnin hér, meiri hlutinn á þinginu að því marki sem menn treysta sér til að taka þátt í þessari umræðu um þetta stærsta mál ríkisstjórnarinnar, sem er ekkert mjög mikið eins og komið hefur fram, og reyna að telja fólki trú um að það sé enn líf í umsókninni, rétt eins og í frægu grínatriði Monty Python með dauða páfagaukinn sem dýrakaupmaðurinn reyndi mikið að útskýra fyrir viðskiptavininum að væri í rauninni sprelllifandi þótt hann lægi dauður í búrinu. Það væri bara túlkunaratriði. Dýrakaupmaðurinn fann upp á ýmsum skýringum á því: Hann gæti hafa viljað hvíla sig eða saknaði heimahaganna eða hvaðeina, en hann væri sannarlega lifandi enn, sem hann var auðvitað ekki, ekki frekar en þessi umsókn um aðild að Evrópusambandinu. [Hlátur í þingsal.]

En það er nú einmitt vandinn, þannig á að nálgast þetta mál í einhverjum hliðarveruleika án tengsla við raunveruleikann. Það er ekki, tel ég, vænlegt til árangurs þegar þannig er farið af stað. En í hvaða tilgangi að fara af stað með þessum hætti, með þessum blekkingarleik? Í þeim tilgangi að reyna að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Hvers vegna ætti Ísland, sem hefur náð stórkostlegum árangri í krafti fullveldis síns á liðnum árum, miklu meiri árangri en Evrópusambandið sem er í endalausum hremmingum og krísu, er orðið að eins konar hnignunarbandalagi eins og menn kalla það, hvers vegna ætti Ísland að vilja ganga þar inn? Þar nefndi ég eitt dæmi, sem hv. þingmaður ætlar að svara núna í seinna andsvari sínu, staða velferðarkerfisins og lífeyriskerfisins í Evrópu samanborið við Evrópusambandið og samanborið við Ísland.