þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Já, þetta er alveg hreint með ólíkindum. Hér heima láta talsmenn ríkisstjórnarinnar eins og þjóðaratkvæðagreiðslan snúist aðeins um viðræður, að kíkja í pakkann eins og sagt er, að fá upplýsingar. Af hverju viljið þið fá frekari upplýsingar? En í Brussel er talað um að Ísland sé á hraðferð inn í Evrópusambandið. Hvort er rétt, virðulegi forseti? Erum við bara að fara í einhvern „picnic“-túr og kanna hvað er í boði? Við lesum um það í erlendum fjölmiðlum að við séum að fara á hraðferð inn í Evrópusambandið.
Mig langar líka að fá að nefna það aftur að fyrir 13 árum síðan voru aðildarviðræður Íslands við ESB stöðvaðar. Stjórnvöld tilkynntu í kjölfarið til ESB að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki og ESB hefur litið svo á allar götur síðan enda má fletta því upp á heimasíðu sambandsins. Hvað á að halda áfram að gera?
Hv. þingmaður spyr hér út í gjaldþrota velferðarkerfið og gjaldþrota lífeyriskerfið. Nú er það svo að samkvæmt Mercer-vísitölunni, sem er vísitala allra lífeyrissjóða í heiminum, hefur Ísland verið þar í fyrsta sæti síðan við tókum þátt í þessari vísitölu, sem ég held að séu síðustu fjögur eða fimm árin — nei, það er lengra, ætli það séu ekki síðustu sex árin. Við höfum verið þar númer eitt með besta lífeyrissjóðakerfi heims ásamt Hollendingum og Dönum, sem eiga góð sjóðasöfnunarkerfi, á meðan mörg ríki Evrópusambandsins eru með gegnumstreymiskerfi sem munu setja þessi lönd á hausinn. Það er bara þannig.
Mig langar líka að fá að nefna hér í blálokin, því að mér finnst svo villandi umræða frá stjórnarliðum, að hér fyrir nokkrum dögum síðan sagði hv. þm. María Rut Kristinsdóttir í pistli sem hún skrifaði að með inngöngu í ESB og upptöku evru myndi verðbólgan lækka, vextir myndu koma til með að lækka, matvælaverð myndi lækka, samkeppni myndi aukast og að Ísland myndi eiga sæti við borðið. Ef þetta er ekki villandi málflutningur af hálfu stjórnarliða þá veit ég ekki hvað.