þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Enn og aftur erum við auðvitað bara algerlega ósammála, talandi um að við séum að færa okkur yfir í verra efnahagsumhverfi. Það hafa einmitt verið rök okkar sem erum höll undir aðild að það sé komið tæki til að hafa vexti og verðbólgu lægri en hefur verið viðvarandi hér á Íslandi. Ég vil meina að það sé kerfið okkar, gjaldmiðillinn, sem hafi haft mikið um það að segja en ekki endilega bara slælegur árangur fjármálaráðherra og forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í gegnum tíðina. Það er ákveðinn kerfisvandi sem er þarna líka. Og já, það er gaman að rifja upp gömul ummæli. Það er nefnilega þannig að fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, lofaði því fyrir kosningarnar 2013 og eftir kosningar að fara ætti í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna. Það hefur núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins líka gert í öðru embætti þó, þannig að þetta er ekki einhver svona furðuleg jaðarskoðun sem dúkkar allt í einu upp hjá þeim flokkum sem nú sitja í ríkisstjórn. Það eru fjölmargir aðilar í Sjálfstæðisflokknum sem hafa kvittað upp á stjórnarsáttmála sem í var grein um að fram ætti að fara þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna að Evrópusambandinu. Þetta er ekki meira furðuverk en það, þessi sakleysislega tillaga sem nú liggur fyrir þinginu. Þetta er nefnilega þannig að við höfum verið að tala um þetta, meira og minna allir flokkar sem eiga sæti hér á Alþingi hafa einhvern tímann ljáð máls á því að hægt væri að leysa úr þessum hnút og leyfa þjóðinni að gefa stjórnmálunum ákveðinn vegvísi fram í tímann. Það hefur til að mynda formaður Miðflokksins núverandi sagt oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þetta er engin jaðar- eða furðuskoðun.
Eitt að lokum, af því að það hafa verið mikil orðaskipti um það hvort það þurfi aukinn meiri hluta í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu: Eru menn sem sagt í alvöru að reyna að teygja umræðuna í það að ef 51% segir já en 49% segja nei þá ætlum við að segja við 51 prósentið: Heyrðu, nei, við ætlum að láta minni hlutann ráða, þið eruð ekki nógu mikill meiri hluti. (Forseti hringir.) Hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir var kjörin formaður Sjálfstæðisflokksins og fékk 50,1% atkvæða. Réttkjörinn formaður er hún svo sannarlega. Við erum svolítið komin út í skurð. Í þessari umræðu erum við farin að teygja lopann í því að hér sé einhver umsókn ekki gild og það þurfi einhvern stórfenglega aukinn meiri hluta við jáið. Þetta er bara ofureinfalt þjóðaratkvæði og við skulum ekki vera að flækja þetta mikið meira en það.