þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það virðist þurfa að minna þingheim, og hv. þingmann, á að þegar þessum aðlögunarviðræðum var slitið á sínum tíma höfðu farið fram kosningar. Og hér komust flokkar til valda sem voru á móti inngöngu í Evrópusambandið. Ég tel að það sé algert feigðarflan að fara í svona vegferð ef ekki er meiri hluti fyrir því hér á Alþingi og ekki einu sinni meiri hluti fyrir því í ríkisstjórn. Það sætir mikilli furðu að hér ætlar núverandi vinstri stjórn að endurtaka leik vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og fara aftur í þessa vegferð þegar ekki er einu sinni meiri hluti fyrir því í ríkisstjórn. Og það er ekki meiri hluti fyrir málinu á þingi, það er ekki meiri hluti fyrir því að ganga í Evrópusambandið á þingi. Það hefur formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, margoft sagt og það sagði hæstv. forsætisráðherra líka fyrir kosningar; hún sagði að ekki ætti að leggja af stað í þessa vegferð ef vilji þjóðarinnar til þess væri ekki ríkur. Hún ætlaði ekki að kljúfa þjóðina, það eru allir búnir að gleyma því. Og hér spyr hv. þingmaður líka: Viljið þið ekki hafa vexti og verðbólgu lægri? Jú, það vilja allir hafa vexti og verðbólgu lægri. Út á það hlaut fólk hér kosningu. Það fór hér um héruð og sagðist ætla að berja verðbólguna niður með sleggju. Fólk er löngu hætt í því verkefni og það ýtir undir verðbólguna sjálft. Þegar verið er að tala um slælegan árangur fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þá dæma þau ummæli sig sjálf í ljósi þess hversu slælegur árangur núverandi fjármálaráðherra og forsætisráðherra er hér í efnahagsstjórn.