157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:27]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans fyrra andsvar. Það er nefnilega málið. Menn eru að tala um krónuna. Við megum ekki gleyma því að árið 2019, áður en Covid kom og setti ekki bara efnahag okkar og aðstæður á hliðina heldur alls heimsins, voru 3,9% vextir og 2,2% verðbólga. Við vorum búin að hafa það í nokkuð langan tíma. Við vorum búin að vera undir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans í nokkur ár. (Gripið fram í.) Undir 2,5%. En það er í rauninni alveg ótrúlegt að sumir virðast halda það — ef fólk er óreiðufólk með fé eða í tilfelli ríkisstjórnarinnar, óreiðufólk með annarra manna fé sem vinstri mönnum finnst alltaf gaman að eyða, þá skiptir það engu máli. Það er verið að reyna að telja fólki trú um að það skipti máli hvort visareikningurinn komi í dollurum, evrum, pundi eða íslenskum krónum. En það skiptir engu máli. Hagstjórnin heima fyrir segir til um hagsæld þjóðar og hvernig henni reiðir af og ekkert annað. Ég held að það sé akkúrat þetta, hvernig við gátum nýtt krónuna eftir efnahagshrunið til að auka gjaldeyristekjur og hvernig viðspyrna Íslands var með allt öðrum hætti heldur en annarra Evrópuþjóða, t.d. Íra og annarra sem voru bundnar í rauninni meira og minna við það hvernig efnahagslíf Þýskalands gekk og evrunnar. En við gátum fellt gjaldmiðilinn og komið okkur á lappirnar strax aftur.

Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála því að þegar er verið að horfa til þessarar umræðu þá verði líka að segja fólki rétt og satt frá. Þrátt fyrir að við myndum ganga í Evrópusambandið þá er ekki þar með sagt að við séum sjálfkrafa komin með evruna og það getur tekið þó nokkuð langan tíma.