157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:36]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir. Ég held að þetta grín hans hafi einmitt verið svolítil óskhyggja. Hann er innst inni ekkert sáttur við að þessi atkvæðagreiðsla fari fram og þess vegna væri hann alveg til í að það myndi gerast eftir einhverja áratugi. Ég lít hins vegar á þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrirtaksleið til þess að losa okkur stjórnmálamennina út úr þessu þrasi sem við höfum verið að teygja lopann í áratugum saman. En það er annað sem mig langaði að spyrja hv. þingmann um, og þetta heyrir maður svolítið mikið: Þeir sem vilja ekki fara þessa leið, að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eða yfirhöfuð í viðræður við Evrópusambandið, tala alltaf um að þeir sem vilji gera það séu að kljúfa þjóðina. Þeir sem vilja svara spurningunni neitandi telja sem sagt að þeir eigi einkarétt á þessu hugtaki, að kljúfa þjóðina. Rétt eins og þjóðin sé ekki ósammála um þetta fyrir. Hvernig geta þeir sem vilja segja nei talað um að þeir sem vilja segja já séu að kljúfa þjóðina? Af hverju skyldi það ekki alveg eins vera akkúrat hið öndverða? Þetta er ekkert flóknara en það. Menn ganga svolítið langt í að slá eignarhaldi sínu á einhverja frasa sem eiga að hafa einhverja þýðingu fyrir almenning í landinu en hafa í raun og veru ekki neina þýðingu.

Klýfur þetta þjóðina? Þjóðin er ósammála um þetta. Þjóðin er ósammála um stefnur heilu stjórnmálaflokkanna. Þjóðin er ósammála um stefnu þessarar ríkisstjórnar og allra ríkisstjórna sem á undan gengu. Það er ekkert nýtt í því að við séum ósammála. Það sem er hins vegar nýtt í þessu núna er að þessi ríkisstjórn er að fara að efna loforð sem ansi margir stjórnmálaforingjar í ansi mörgum flokkum hafa verið að gefa í gegnum tíðina og það er vel. Mig langar því að spyrja hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson: Hvað gefur honum rétt til þess að telja sig geta notað þetta hugtak, að kljúfa þjóðina, frekar en þeir sem vilja segja já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu og mögulega já við aðildarsamningi ef málið fer svo langt?