þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Spurningin var: Hvað gefur þeim sem hér stendur rétt til þess að tala um að þetta kljúfi þjóðina? Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að þetta kom fram í ræðu minni hér áðan. Og þetta hefur komið fram í ansi mörgum ræðum, virðulegur forseti, í þessu máli. Ég get ekki talað fyrir alla aðra þingmenn sem hafa verið að nota þennan frasa í sínum ræðum en ég held, og það á alla vega við í mínu tilfelli, að þetta sé sprottið upp úr ræðu hæstv. forsætisráðherra sem notaði einmitt sjálf nákvæmlega þessi sömu orð þegar hún talaði um að ekki væri tími fyrir umræður um Evrópusambandið og að ekki ætti að kljúfa þjóðina, það ætti að sameina hana. Ég vísa hv. þingmanni því á forsætisráðherra ef hann vill fá betra upprunavottorð á þessa setningu. En ég mun nota þetta aftur og tel mig svo sem ekkert þurfa einhverja sérstaka heimild eða leyfi til þess eða umboð. En ef hv. þingmanni líður betur með það þá skal ég klukka hann nokkrum stundum áður en ég ætla að nota þetta þannig að hann sé undirbúinn undir það áfall sem dynur yfir hann þegar þetta kemur fram í mínum ræðum. Og ég vona að ég hafi ekki valdið honum miklu hugarangri svo seint að kvöldi til. En annars þakka ég fyrir.