157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:52]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans seinna andsvar. Ég verð nú að viðurkenna að ég held að ég sé ákveðið fórnarlamb þess að stjórnarliðar hafa ekki mikið verið að gefa færi á sér í ræður og fá andsvör því að ég held að þessari spurningu væri betur beint að stjórnarmeirihlutanum. (Gripið fram í.)Stutta svarið er: Ekki veit ég það en auðvitað tel ég að betra væri ef einhver af hálfu stjórnarmeirihlutans myndi alla vega reyna að lesa sér til gagns, komast örlítið nær því hvernig raunveruleikinn myndi líta út ef niðurstaðan verður já. Við höfum heyrt af því að afstaðan í Brussel er svona frekar afgerandi um að lög og reglur séu frekar skýr og ríki sem kjósa að ganga þarna inn þurfi að aðlagast því. Eins og ég spyr: Mér finnst alger lykilspurning að fá skýrt svar frá ríkisstjórninni um hvort það sé yfirhöfuð í boði að breyta einhverjum reglum hérna á meðan aðlögunarferlinu stendur. Aðrir fullyrða að það sé allt hægt í þessu. Ég get ekki staðið hér og fullyrt eitt né neitt en mér þykir verra að það séu ekki skýrari svör á reiðum höndum frá stjórnarmeirihlutanum. Því langar mig að nefna undir lok þessarar umræðu, því að auðvitað hefur maður áhyggjur af þeirri þinglegu vinnu sem er fram undan, að ég held að það væri mjög farsælt fyrir vinnuna hérna í húsinu að taka vel til greina tillögur hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur sem hún reifaði hér í umræðunni fyrr í kvöld: Í fyrsta lagi að fresta atkvæðagreiðslunni um einn og hálfan mánuð eða svo til þess að þing sé að störfum og þessi umræða fái að þroskast í lýðræðislegu umhverfi sem er ekki í sumarfríi og í öðru lagi að Feneyjanefndin geti farið yfir hvort hér sé nægilega skýrlega og faglega staðið að málum. (Forseti hringir.) Ég held að þessir tveir þættir myndu strax búa til betri umgjörð í kringum þetta risastóra mál svo allir gætu unnið betur og sameiginlega í þágu þjóðarinnar að því.