Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 772, um fjárframlög og ívilnanir til íþrótta- og æskulýðsstarfs, frá Huldu Bjarnadóttur. Einnig hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 786, um hagræðingu í ríkisrekstri, frá Árna Helgasyni, og á þskj. 773 og 774, um BRCA-arfbera og um valkvæðar aðgerðir, báðar frá Huldu Bjarnadóttur. Einnig hefur borist bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 799, um mannauðsmál, frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
Að lokum hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 779, um hagræðingu í ríkisrekstri, frá Árna Helgasyni, auk eftirfarandi fyrirspurna frá Ingibjörgu Davíðsdóttur: á þskj. 790, um mannauðsmál, á þskj. 803, um hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar, á þskj. 805, um sendiráð Íslands í Madríd, á þskj. 808, um embættisbústaði, á þskj. 809, um varnar- og öryggismál, á þskj. 820, um fjárframlög og styrki til samtaka og stofnana, á þskj. 822, um rekstrarkostnað sendiskrifstofa, og á þskj. 824, um lokun sendiráðs Íslands í Moskvu.