157. löggjafarþing — 83. fundur,  17. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:39]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Forseti. Eftir samtöl sem ég hef átt við fólk í atvinnulífinu velti ég fyrir mér hvort við séum að missa af lestinni í miðri tæknibyltingu sem er ólík því sem áður hefur sést þegar kemur að hraða og áhrifum sem hún mun hafa. Já, ég er að tala um gervigreindina og allar afleiður hennar. Þau sem stúdera þetta mest segja að allir málaflokkar okkar séu undir og að gífurleg tækifæri og varhugaverðar ógnir af völdum vitvélanna séu fram undan. Vinnumarkaðurinn mun breytast og jafnvel samfélagsgerðin öll. Ef við ætlum ekki að sofna á verðinum og hrökkva upp af værum blundi þarf að gera miklu meira en að fylgjast bara rólega með. Við verðum að bregðast við strax í dag. Eistar stefna á að nýta gervigreind til að auka landsframleiðslu um 25% á fimm árum og þeir ætla að auka efnahagsvöxt um 50% til ársins 2035. Þetta eru risamarkmið. Ættum við að setja fram svona markmið? Hvað ef 400.000 manna þjóð getur allt í einu afkastað á við 4 milljónir? Hvað ef Ísland yrði leiðandi í notkun gervigreindar í opinberri þjónustu? Hvað ef við næðum að einfalda regluverk, bæta stjórnsýslu og þjónustu við almenning með hjálp gervigreindar? Aukið verðmætasköpun á sama tíma og við stöndum vörð um fjöreggin okkar, tungumálið, lýðræðið og menninguna.

Forseti. Gervigreindin mun alveg örugglega ekki bíða eftir því að við á Alþingi Íslendinga áttum okkur á henni. Ég kalla eftir því að settur verði saman hópur til að greina stöðuna og gera þjóðhagfræðilega greiningu á tækifærunum sem hér liggja og já, helst spretthóp sem vinnur á hraða gervigreindar en ekki á hraða stjórnsýslunnar, því tíminn er naumur.