Störf þingsins.
Frú forseti. Hér er lagt fram á hverjum þingvetri fullt af þingmannamálum. Þessi þingmannamál eru yfirleitt öðruvísi en mál frá stjórnarliðum eða ríkisstjórninni. Þau eru oft um eitthvað sem er að gerast á hverjum tíma. Þetta eru mál sem fólk og fyrirtæki hafa iðulega bent þingmönnum á, eitthvað sem megi bæta. Þingmannamál eru af margvíslegum toga og þegar þau eru lögð hér fram er þeim við lok 1. umræðu vísað til nefnda. En hvað gerist? Nefndirnar óska eftir umsögnum. Fullt af fólki og fyrirtækjum eyðir dýrmætum tíma sínum, frú forseti, í að skrifa umsagnir um mál. Til hvers? Að því er virðist til einskis vegna þess að meirihlutaþingmenn taka ekki þessi mál á dagskrá nema þingmannamál frá meiri hlutanum. Nú lít ég svo á að til að sinna minni vinnu hér eigi nefndirnar að taka þessi mál fyrir vegna þess að þessum málum er vísað til nefnda. Ég óska því liðsinnis frú forseta við hvernig við eigum að höndla þessi mál vegna þess að það er síðan forseti sem ákveður hvort málin fari á dagskrá. Er það ekki skilningur forseta að það eigi að vinna í málunum, að þetta sé ekki eitthvert leikrit, ekki eitthvað til málamynda, heldur eigi að vinna í málunum og afgreiða þau væntanlega út úr nefnd ef það eru ekki annmarkar á þeim? Og svo er það þingið eða forseti sem ræður því hvort það verði sett á dagskrá og hvort það hljóti áframhald, hvort það fari áfram, hvort forseti hleypi því á dagskrá.
Þetta þykir mér vera eitthvað sem ég sem nýr þingmaður þarf að fá svar við frá forseta af því að ég ætla ekki að taka þátt í einhverju leikriti hérna, að vera að taka á móti málum, eyða dýrmætum tíma fólks og fyrirtækja ef það á raunverulega ekki að gera neitt með þessi mál.