Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Á morgun fara fram Íslensku tónlistarverðlaunin þar sem þeim er hampað sem hafa þótt framúrskarandi árið 2025. Reyndar er það svo að íslenskt tónlistarfólk almennt þykir framúrskarandi á heimsmælikvarða og margir fengu að njóta þessar þess sem hún Laufey hafði fram að færa hér um helgina á algerlega mögnuðum tónleikum. Við eigum fleira frambærilegt tónlistarfólk: Víkingur Heiðar fer sigurför um heiminn og þykir meðal bestu píanóleikara sem heimurinn hefur hreinlega upp á að bjóða í dag, Kaleo spilar fyrir þúsundir tónleikagesta um allan heim, Hildur Guðnadóttir semur tónlist í stærstu kvikmyndir og svona mætti lengi telja. Og Björk, að sjálfsögðu. En þetta er bara toppurinn á ísjakanum, frú forseti, því að það er fullt af tónlistarfólki sem vinnur við það alla daga að semja tónlist og flytja hana, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim, og þetta gerist ekki af sjálfu sér. Þetta er afrakstur þess að við eigum frábært og framúrskarandi tónlistarskólakerfi og síðustu ár og áratug höfum við líka verið að byggja upp mjög gott og mikilvægt stuðningsumhverfi fyrir tónlistariðnaðinn, því að það er ekki svo að það dugi bara til að vakna einn góðan dag og geta samið tónlist. Þetta er viðskiptaumhverfi. Það þarf sérþekkingu og hana höfum við markvisst verið að byggja upp, t.d. í Tónlistarmiðstöðinni. Það er mikilvægt á tímum sem þessum að við verndum menningu og skapandi greinar, þegar athyglin er að færast á öryggis- og varnarmál. Það tekur langan tíma að byggja upp menningu og skapandi greinar en við getum verið fljót að rífa þær niður. Þetta er ekki bara hluti af okkar sjálfsmynd og mikilvæg og góð landkynning, þetta eru störf sem fullt af fólki vinnur dag frá degi. Við íslenskt tónlistarfólk vil ég segja: Til hamingju með uppskeruhátíðina ykkar og magnaðan árangur síðustu áratugi.