Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú styttist í kosningar til sveitarstjórna en þær fara fram 16. maí næstkomandi. Framboðslistar í sveitarfélögum eru að birtast hver af öðrum og ánægjulegt að sjá hversu margir sýna áhuga á að taka þátt. Þegar allir listar verða komnir fram, þá verða þetta þúsundir einstaklinga sem munu taka formlega þátt í kosningunum. Það er mikilvægt að halda því á lofti hversu mikil forréttindi það eru að búa í lýðræðissamfélagi þar sem við fáum að njóta okkar, höfum rétt til að kjósa, taka afstöðu og sem íbúar að hafa áhrif. Ég veit ekki betur en að þetta sé einmitt það sem allir stjórnmálaflokkar á Íslandi eru sammála um.
Virðulegi forseti. Hér á Alþingi er fjöldi aðila sem hafa með einum eða öðrum hætti starfað annaðhvort sem almennir starfsmenn eða sem stjórnmálamenn á vettvangi sveitarstjórna, einstaklingar sem hafa skapað sér þekkingu og reynslu af sveitarstjórnarstiginu. Við ættum því flest að vera meðvituð um að þegar við fjöllum hér um og erum að taka ákvarðanir um málefni sem snerta þjóðina alla þá hafa þau í flestum tilvikum áhrif á sveitarfélögin í landinu. Við kollegarnir sem störfuðum á sveitarstjórnarstiginu á sínum tíma gerðum oft grín að því hvar klefinn væri sem breytti sveitarstjórnarmönnum í þingmenn því við upplifðum stundum að fyrrverandi sveitarstjórnarfólk hefði alveg skipt um lið, væri komið í ríkisliðið og væri að passa að hygla ekki sveitarstjórnarstiginu um of. Stundum með réttu en kannski oftast með röngu. Það er mikilvægt að minna á að sveitarstjórnarstigið og ríkið eru jafnsett stjórnsýslustig og ég þreytist ekki á að nefna að báðum þessum stjórnsýslustigum ber að sýna gagnkvæma virðingu.
Virðulegi forseti. Sveitarstjórnarstigið er mjög mikilvægt stjórnsýslustig þar sem sveitarstjórnarfulltrúar vinna saman að því að efla sitt samfélag, þar sem sveitarfélög vinna saman í landshlutasamtökum að því að efla sitt svæði og þar sem sveitarfélög vinna saman á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga að því að tryggja góða þjónustu fyrir alla landsmenn. Það gera þau með formlegu samstarfi og með því að eiga fulltrúa við borðið. Kunnuglegt, ekki satt?