Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Byggðir landsins og áhrif starfa þingsins á þær. Það voru gefnar miklar væntingar í aðdraganda kosninga og eftir kosningar um að það ætti að styrkja byggðirnar, styrkja atvinnulífið með því að ræsa vélarnar, setja samgönguframkvæmdir aftur í gang og svo mætti lengi telja. Hér er búið að fara í aðför að atvinnulífinu í byggðunum með því að hækka gjöld á það, eins og veiðigjöld, til að fara í samgönguframkvæmdir. Svo var sett á kílómetragjald til að fjármagna samgönguframkvæmdir. Svo voru snarhækkuð vörugjöld til að fjármagna samgönguframkvæmdir. Öll þessi gjöld leggjast á byggðirnar, draga úr þrótti atvinnulífsins í byggðunum, setja gjöld á íbúa byggðanna. Við sitjum uppi með hvað? Samgönguáætlun sem dregur saman í öllum samgönguframkvæmdum nema viðhaldi á vegum og vetrarþjónustu. Annars er verið að fresta öllum framkvæmdum, fresta þeim eða færa fjármuni á milli framkvæmda. Engar nýjar framkvæmdir til að efla byggðirnar eða efla atvinnulífið í byggðunum. Og hvert er þá nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar? Það er að setja enn eitt gjaldið á byggðirnar án þess að hitt víki. Nú eru áformin þau, þegar við erum með samdrátt í samgöngum, að setja líka á veggjöld. Við erum öll sammála um það hér að það þurfi að fjármagna samgöngukerfið en það er ekki hægt að setja nýja skatta ofan á nýja skatta ofan á nýja skatta og svo koma aldrei neinar samgönguframkvæmdir. Alltaf sett ný gjöld á byggðirnar, á landsbyggðina, á atvinnulífið á landsbyggðinni, á íbúana á landsbyggðinni. Hvenær er nóg nóg?