Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Frá því að meginvextir Seðlabankans fóru fyrst yfir 4% hækkuðu þeir upp í 9,2% á einungis 14 mánuðum eða um 0,4% á mánuði. Í samanburði hafa þeir bara lækkað um 2 prósentustig á síðastliðnum tveimur árum eða um einungis 0,1% á mánuði. Vaxtalækkunarferlið er þannig fjórum sinnum hægvirkara en vaxtahækkunarferlið. Hvernig gengur það upp? Á morgun er komið að enn einni vaxtaákvörðun Seðlabankans. Greiningardeildir bankanna búast við hækkunum sem rakin er til stríðsátaka í Miðausturlöndum sem valdi hækkun olíuverðs og auki bæði verðbólguþrýsting og verðbólguvæntingar. Við skulum aldrei gleyma því þegar við hlustum á greiningardeildir bankanna að bankarnir eru ekki hlutlausir aðilar. Þeir hafa hagnast um hundruð milljarða króna frá því að vaxtahækkunartímabilið hófst og mikill vill oft meira. Skuldug heimili hafa hins vegar lítil sem engin áhrif á verðbólguna. Samt eru þau neydd til að afhenda bönkum og öðrum græðgisvæddum fyrirtækjum tekjur sínar á færibandi. Og núna þegar stríðsátök í Miðausturlöndum valda sviptingum á markaði og hækkandi olíuverði er enn rætt um að auka enn frekar álögur á heimilin. Hvernig í ósköpunum eiga auknar álögur á íslensk heimili að draga úr áhrifum af stríðsátökum og hækkandi olíuverði? Í nærri fjögur ár hafa skuldug íslensk heimili verið gerð ábyrg fyrir verðbólgunni. Á sama tíma eru þau sem virkilega ráða yfir fjármunum landsins og vöruverði algerlega stikkfrí. Þau maka bara krókinn eins og alltaf.
Ég biðla til Seðlabankans að hækka ekki vexti á morgun. Þessi „hækkum bara stýrivextina“-aðferð er ósanngjörn og ekki að virka. Það verður að leita nýrra leiða.