157. löggjafarþing — 83. fundur,  17. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:59]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég hafði nú gert upp við mig í eins manns hljóði, eins og þar stendur, hvað ég hygðist ræða hér í dag í þessum dagskrárlið, störf þingsins, en ég ákvað annað eftir að hafa hlustað á hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fara hér mikinn og nýta sér gamlan og góðan brandara, þ.e. söguna um tjakkinn, sem ég held að öll þjóðin kunni, enda afburðabrandari. Sá brandari á þó ekkert sameiginlegt með þeim flótta sem meiri hlutinn hér í þessum sal hefur verið í undanfarna daga þegar við höfum verið að reyna að kalla eftir rökræðum um Evrópusambandið, bara ekki neitt. Enda ef sagan um bóndann og tjakkinn er skoðuð þá vantaði hluta af brandaranum. Það vantaði þann þátt að það hafði komið fram í fyrri yfirlýsingum og fyrri samningaviðræðum við bóndann að það væri enginn tjakkur til staðar. Það hefur líka verið sett inn á heimasíðu bóndans að hann ætti engan tjakk. Áður hafði sögumaður reynt að fá lánaðan tjakk hjá þessum sama bónda. Svona hefði hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir átt að segja brandarann. Ef hún ætlaði að fanga, í þessum stutta og hnyttna brandara, þá atburðarás sem hefur átt sér stað í þessum þingsal núna undanfarna daga hefði hún a.m.k. getað sagt söguna alla.