157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:05]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að hún kemur ekki á óvart, áframhaldandi andstaða Sjálfstæðisflokksins við að bæta almannatryggingar á Íslandi, að standa með fátækasta fólkinu á Íslandi. En ég geri verulegar athugasemdir við fundarstjórn forseta og óska eftir því að hún grípi inn í þegar hv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jens Garðar Helgason, kemur hérna í ræðustól, vitnar í seðlabankastjóra Íslands og fer með rangt mál. Hann dregur hér fram að hann hafi varað við og lagst gegn því að við myndum fara í atkvæðagreiðslu á morgun, sem er fjarri sannleikanum. (Gripið fram í.) Þetta er túlkun á fyrirsögn sem birtist á vefmiðli og er ekki rétt. Hann gengur lengra og lýsir því að það að bæta kjör lægst launaða fólksins í landinu muni einhvern veginn kynda undir verðbólgubálinu fram undan. Þetta er til skammar, hv. þingmaður, og ég bið hæstv. forseta að stíga inn í þegar þingmenn fara með rangt mál undir þessum lið.