hækkun stýrivaxta.
Virðulegi forseti. Ég er að tala um fundarstjórn forseta og sömuleiðis er ég að vekja athygli á því að hv. þingmaður, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er hér að leiðrétta eitthvað en fer síðan bara rangt með. Það sem er rétt í málinu er að það er umsögn frá Seðlabankanum, ekki bara ummæli sem hv. þm. Jens Garðar Helgason vísaði til, það er umsögn frá Seðlabankanum þar sem Seðlabankinn segir alveg skýrt: Ef þið samþykkið þetta frumvarp þá ýtið þið undir verðbólguna. Og hverjir fara verst út úr verðbólgunni sem þessi ríkisstjórn ætlaði að lemja niður með sleggju og var með plan um? Hverjir fara verst út úr því? Þeir sem minnst hafa, þeir sem minnstar tekjur hafa, þeir sem eru í erfiðastri stöðu efnahagslega.
Virðulegi forseti. Ég hvet forseta til þess að beina því til hæstv. ríkisstjórnar að koma hér með mál til að taka á verðbólgunni (Forseti hringir.) og leggja til hliðar mál sem allir eru sammála um og augljóst er að muni ýta undir verðbólguna eins og það mál (Forseti hringir.) sem hér hefur verið rætt og hv. þm. Jens Garðar Helgason var að vekja athygli á.