hækkun stýrivaxta.
Virðulegi forseti. Við hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, vil ég bara segja að sannleikanum verður hver sárreiðastur. Svo veltir forseti því kannski eðlilega fyrir sér af hverju við séum að ræða þessi atriði hér undir fundarstjórn forseta. Það er auðvitað til að vekja athygli á því, virðulegur forseti, að hér erum við með ríkisstjórn í landinu sem er búin að missa öll tök á ríkisfjármálunum. Það er stóralvarlegt mál. Þrátt fyrir fögur fyrirheit er verðbólga í hæstu hæðum. Hún er vaxandi. Verðbólguvæntingar benda til enn frekari aukningar verðbólgu. Vinnumarkaðurinn er eins og hann er, kominn með prósentur sem við viljum ekki sjá. Það er þess vegna sem er verið að ræða þetta og eins og það má segja að það sé ákveðin óstjórn í landinu þá má segja að það sé ákveðin óstjórn í þinginu, virðulegur forseti, (Forseti hringir.) vegna þess að það virðist vera orðið að meginreglu hér, það sem á að vera undantekning, að hér (Forseti hringir.) séu kvöldfundir dag eftir dag. Það hefur tíðkast í lok þings en ekki við þær aðstæður (Forseti hringir.) sem eru hér nú vegna þess að ekki hefur verið neitt tafið fyrir þingstörfum.
(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn um að virða ræðutímann.)