hækkun stýrivaxta.
Virðulegi forseti. Ég geri áfram athugasemdir við það að hér undir liðnum fundarstjórn forseta eru þingmenn farnir að ræða mál sem tengjast ekki fundarstjórn forseta. Hér höfum við þingmenn þurft að sitja undir því að þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ætli að útskýra fyrir okkur hversu erfitt það sé fyrir þjóðina að búa við hátt vaxtastig og verðbólguástand. Hv. þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vil ég upplýsa um að þjóðin þekkir það mætavel, enda var verðbólga um 10% á síðasta kjörtímabili og vextir fóru langt upp — og þeir hafa nú lækkað um tæp 2%. Það er ástæðan fyrir því að þessi ríkisstjórn [Háreysti í þingsal.] lækkaði halla ríkissjóðs um helming í fyrstu fjárlögum og stefnir að fyrstu hallalausu fjárlögunum í tíu ár strax á næsta ári. Jú, við skulum taka efnahagsmálin alvarlega, ræða um vexti og verðbólgu. Þetta er áherslumál ríkisstjórnarinnar og við tökum verkefnið alvarlega. En að geta ekki verið hér áfram, ef ég vísa hérna í orð hv. þm. Jóns Gunnarssonar, og veigra sér við því að funda á kvöldin þegar einmitt mörg brýn mál eru undir, t.d. er varða húsnæðismarkaðinn og fleiri mál (Forseti hringir.) á dagskrá þingsins — mér finnst það ekki vera (Gripið fram í: [Framíköll í þingsal.]) góð merki þess að skilja vandann sem við þurfum að taka alvarlega.