157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:20]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Augljóslega er fólki heitt í hamsi enda vöknuðum við upp við það í morgun að vaxtahækkunarferli Seðlabankans er hafið. Það er ekki bara búið að stöðva vaxtalækkunarferlið sem hófst í tíð síðustu ríkisstjórnar heldur er hækkunarferli hafið.

Virðulegur forseti. Það er nú lágmark þegar við tölum um svona alvarleg mál að fólk gæti sanngirni. Jú, við bjuggum við mikla verðbólgu og hátt vaxtastig á síðasta kjörtímabili. En hverju var um að kenna? Ytri aðstæðum sem við glímdum við og við sameinuðumst þá í þessum sal að takast á við Covid og elda á Reykjanesi. Ofan á það lagðist stríð í Evrópu. Hvað glímum við við núna? Heimatilbúið vandamál þessarar ríkisstjórnar. Það er búið að vara við því. Það eru ekki bara við í stjórnarandstöðunni sem höfum staðið hér og varað við því heldur allir helstu hagfræðingar þessa lands, fjármálaráð, Seðlabankinn og svo mætti lengi telja en ekki hefur verið hlustað á eitt né neitt. (Forseti hringir.) Er nema von að við í stjórnarandstöðu komum hér upp og óskum eftir því að þessi mál verði rædd af einhverri alvöru og að ríkisstjórnin sýni okkur raunverulega (Forseti hringir.) hvernig hún ætli að bregðast við þessu? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)